Um Fótboltaþáttinn
Vorið 2006 hóf Fótboltaþátturinn göngu sína á Útvarpi Sögu. Þátturinn var klukkutími í senn, vikulega á fimmtudögum og bar þá nafnið „Fótbolti á fimmtudegi“. Um tíma var þátturinn lengdur í tvær klukkustundir áður en núverandi fyrirkomulag, klukkustund í senn á mánudögum og föstudögum kl. 17-18 varð lendingin.
Fjölmargir hafa komið að stjórnun þáttarins með Birni Berg, en frá sumrinu 2008 hafa þeir Kolbeinn Tumi alfarið séð um þáttastjórn.
Fjöldi áhugaverðra viðmælenda hefur litið við og aðrir hafa rætt knattspyrnuna við okkur í gegnum síma. Má þar nefna Bjarna Felixson, Ólaf Jóhannesson, Geir Þorsteinsson, Hilmar Björnsson, Henry Birgi Gunnarsson, Teit Þórðarson, Kristinn Jakobsson og svo mætti lengi telja.
Fótboltaþátturinn
Björn Berg og Kolbeinn Tumi fjalla um allt er við kemur fótboltanum í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu FM 99.4, mánudaga og föstudaga milli kl 17-18.
Duration: 30:07 m - Filetype: mp3 - Bitrate: 127.706502287 KBPS - Frequency: 44100 HZ
Fótboltaþátturinn - 19. apríl 2010
- Björn, Tumi og Atli hituðu upp fyrir Evrópuleiki vikunnar, rifjuðu upp tíðindi helgarinnar og spáðu í hneykslissögur utan úr heimi
Download



